Erla Perla
msn-ið mitt
27.12.2006 15:44:52 / erlagulla

TIL HAMINGJU!!!

Í dag eru 20 ár síðan að Helga Eir var skírð og í dag eiga mamma og pabbi 20 ára brúðkaupsafmæli! Til hamingju með það elsku mamma og pabbi.

En svo í dag þá er ég að fara á Seyðisfjörð að spila fótbolta en við stelpurnar höfum alltaf gert þetta yfir hátíðarnar, þ.e. hist og spilað fótbolta. Svo er firmamótið núna á föstudaginn og það er að sjálfsögðu búið að stofna Brimbergs lið!! Við erum sko komnar með hörkulið.

Ætlaði að reyna að fara í klippingu í dag en það er allt lokað!! djöfullinn...


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 18:42:28 / erlagulla

jólakveðja frá mér.

GLEÐILEG JÓL :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 11:46:04 / erlagulla

MANNSTU

MANNSTU

Eftir fyrsta skóladeginum – uuu... neee alls ekki, man ekki alveg hvar ég bjó þegar ég var í fyrsta bekk, held samt á djúpavogi, er samt ekki klár.

Fyrstu skólatöskunni – jahá!! hún var geggjað flott, svona bleik kassataska, æ svona taska eins og allir áttu!!!

Þegar þú eignaðist fyrstu vinkonuna – fyrstu vinkonuna??? uuuu nei, man ekki eftir því.

 

Þegar þú varst alltaf að stelast til að mála þig - ætli það hafi ekki verið þegar ég átti helvítis hvíta meikið sem að ég lét á mig þegar ég var 13 ára!! ojjj fæ viðbjóð þegar ég hugsaum það!!!

Fyrsta kossinum – dííí man ekki hvenær!

Fyrsta kærastanum – váá... man það ekki... það hefur ábyggilega verið einhver í leiksólanum eða einhvað!

Þegar maður sendi vini sína til að spyrja þennan um að spyrja hinn hvort hann vildi byrja með þér? já heheh.. ég man sérstaklega vel eftir því þegar ég var með Tómasi og ég bað Örnu um að segja honum að ég vildi hætta með honum... en það fyndna var að þegar Arna sagði honum það þá var hann á fótboltaæfingu, þ.e. allir strákarnir saman, og ég og Arna stöndum þarna á hliðarlínunnim og Arna öskrar "Tómas, Erla vill ekki vera með þér lengur" hehehehe... ég stóð við hliðina á henni skælbrosandi : ):) hehe... Svo hlupum við í burtu!!!

Þegar þú varst skilin útundan – ég skilin útundan?? það gerðist aldrei, ég er svo ákveðin að það yrði frekar ég sem að myndi skilja einhvern útundan!!

Þegar þú varst i unglingaleik – Hvað er það?? kiss kiss og útaf eða??? þá hljóp maður nú bara alltaf að sráknum sem að maður var skotin í og þegar hann var að elta mig, þá þóttist ég detta þannig að hann náði mér. Gleymi því ekki þegar ég varð ástfangin upp fyrir haus af Hilmi, vááá... þegar ég sá hann fyrst í rauða rúllukragabolnum sem hann var ALLTAF Í!!!!! HEHEHE....

Þegar þú hataðir stráka – Ég er nú svo mikil strákastelpa þannig að ég hef nú aldrei hatað stráka.

Eftir Löggu & Bófa – Já, shit hvað ég man eftir því, við vorum alltaf að kasta poppbaunum á milli okkar með svona túttubyssu!!

Eftir eina krónu – Já, það var nú uppáhaldið mitt í den.

Þegar það var alltaf verið að trollera mann (henda  manni upp í loft) – Uuu..nei!

Þegar það var alltaf tekið mann i snjóinn – þá brjálaðist ég!!! hehehe... en ég reyndi nú samt bara að gera það á móti, það var líka alveg hægt þegar að Arna hjálpaði manni, hún var nú alltaf lífvörðurinn minn þegar kom að því að slást, hún snéri strákana bara niður!!!

Þegar þú smakkaðir áfengi fyrst – Já!!! Það var í fótboltapartýi heima hjá Sæunni!! Shit hvað það var gaman!!!! Það er svona partý sem að maður gleymir aldrei...

Þegar þú tókst fyrsta smókinn – Smókinn?? ég reyki nú ekki.

Þegar þú HATAÐIR reykingar – Ég hata ennþá reykingar, fæ alltaf í hálsinn og verð rám þegar ég er búin að vera á djamminu og er búin að vera inn á stöðum sem að má reykja.

Þegar þú misstir meydóminn - Já.

Þegar þú lærðir að reima – Já það var eins og að ég veit ekki hvað hefði gerst það, ég var svo ánægð!!

Þegar þú fattaðir að jólasveinnin væri ekki til – Nei ég man ekki eftir því.

Eftir Hemma Gunn þegar leikföngin komu alltaf úr loftinu þegar litla barnið var búið að pússla - HA???

Fyrsta msn-inu þinu – Nei

Fyrsta "deitinu" – Hef aldrei farið á deit!

Fyrstu ástarsorginni – Já...held það...

Fyrstu 10unni – Guð nei.. hef sjaldan eða aldrei fendið tíu!

Þegar þú máttir vera eins lengi og þú vildir úti á Gamláskvöld – Ég var nú bara alltaf eins lengi og ég vildi.

Þegar þú fékkst fyrsta páskaeggið – Neibb…

Þegar þú byrjaðir á túr- JÁ GUÐ MINN ALMÁTTUGUR, hvað ég man eftir þvi!! Ég bjó á Egilsstöðum, og þetta var um morgun og ég var að undirbúa mig að fara í skólann og ég gleymdi þessu ekki, shit hvað ég var hrædd, skildi ekkert í þessu, skildi ekkert hvaða blóð þetta væri!! öskraði á mömmu alveg skíthrædd og hún sagði mér nú hvað væri í gangi og eina bindið sem að hún átti var GEÐVEIKT þykkt helvítis bindi, ekkert smá óþægilegt! ég  var alveg í rústi allan daginn, ég man meira að segja í hvaða fötum í fór í skólann.... þetta var skelfilegt!

Þegar þú fekkst fystu bloggsíðuna – já þá hafði helga verið að suða í mér að gera bloggsíðu, en ég viðurkenni það alveg að ég mætti nú alveg vera duglegri að blogga!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 10:16:07 / erlagulla

smá blogg

Góðan daginn. Hvernig er hægt að vera svona þreytt?? án gríns þá er ég alveg að leka niður! Það er ekkert smá erfitt að vakna á morgnanna þegar það er svona dimmt! núna er klukkan tildæmis tíu mínotur yfir tíu og það er ennþá svarta myrkur!! á svona stundum langar manni nú bara að liggja heima og kúra undir sæng! En æðisleg helgi að baki... ég og helga skelltum okkur austur á föstudaginn. Við komum mömmu á óvart, hún vissi ekki að við vorum að koma, en pabbi vissi það samt.. Mömmu brá svo þegar við komum að hún krökk alveg í kút og öskraði :) :) :) það var endalaust fyndið. En öll helgin fór í það að borða! Shit hvað það var borðað mikið! enda er ekki annað hægt en að borða mikið þegar mamma og pabbi elda!! en ég ætla nú bara að blogga smá. Helga segir ykkur meðal annars frá helginni og skelfilegri flugferð!! grátur og allur pakkinn!

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 09:22:18 / erlagulla

Flutt....

Góðan og blessaðan daginn öll sömul.. ég veit að ég er ekki sú allra duglegasta við að blogga en núna er ég ákveðin í að verða dugleg!! :)

en það helsta í fréttum hjá mér er að við erum búin að fá íbúðina :) erum búin að vera að flytja alla þessa viku og erum búin að vera svakalega dugleg! eða ég er allavega búin að reyna að vera dugleg, því að þegar ég og örvar héldum á sjónvarpinu inn í íbúðina, það er sko frekar mikið þungt þá hélt ég einhvern veginn svo vitlaust á því að ég tognaði! en eins og ég er, þá þrjóskaðist ég að halda áfram að bera inn.. var ekkert að segja þeim að ég hafi meitt mig.. en síðan daginn eftir þá finn ég svona svakalega til í allri hendinni, alveg frá olnboga og alveg alla leið niður hendina, líka fingurnir... átti mjög erfitt með að hreyfa þá...en ég lét bara teygjubindi á mig og það virkaði ágætlega. En núna í dag er ég fyrst að vera skárri... enda ætlaði ég mér að taka helv*** teygjubindið af mér fyrir helgina! Því að glætan að ég ætlaði að vera með það í fína kjólnum mínum sem að ég verð í, í afmæli ársins :) :) :) en jújú mikið rétt.. það er sko afmæli ársins að skella á... en helga eir og örvar eru að fara að halda upp á afmælið saman.

En svo keyptum ég og örvar okkur rúm úr betra bak í gær, við fáum það í dag, og svo ætlum við að gista fyrstu nóttina í kvöld í nýja rúminu :) veiiiiii....

en jæja gott í bili..

kveðja Lama Fatladóttir :)


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 13:29:06 / erlagulla

ein skitin greiðsla!!!

Er ekki verið að grínast í mér??????????? allavega þá er ég að fara á árshátíð á laugardaginn og ég verð í svo fínum kjól þannig að mér langar að fara í hárgreiðslu! bara svo að ég verði ekki eins og drusla um hárið.. en ok, ég hringi á nokkrar stofur og váááááááááá... það kostar 5900 helvítis greiðsla!! ég sagði nú við þær sem að ég hringdi í að ég vildi ekki neina fermingargreiðslu, bara svona létta greiðslu, nei nei 5900 krónur!!! sko frekar fer ég eins og drusla um hárið takk fyrir og góðan daginn!! en ég ætla að vísu halda áfram að leita en ég var núna enda við að hringja á eina stofu og þá svaraði einhver eldgömul kelling og þar kostaði 2600 krónur, spurning hvort að maður far þangað... æ svo lætur hún einhverja þvílíka kellinga greiðslu í mig og hvað þá??? dííí... bara ef að dagný thelma myndi nú vera í bænum um helgina eða þá að lára dóra myndi ekki búa fyrir vestan... oooooo

kveðja ein í vandræðum!


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 09:56:57 / erlagulla

MET..

Við byrja á því að óska Gunnari Erni og Ólöfu til hamingju með litla sæta kútinn... en þau áttu hann í nótt 30 Október.

En já eins og ég segi hérna í fyrirsögninni þá sló Erla Gunnlaugsdóttir met um helgina!!!! ÉG SVAF TIL HÁLF EITT... eða 12:23!! og er það met hjá mér.. aldrei hefur mér tekist að sofa svona lengi! að vísu fór ég að sofa klukkan hálf fjögur en samt sló ég met! og örvar minn líka, hann vaknaði klukkan 12! vóóó ég skil ekki hvað er í gangi hjá okkur... því vanarlega um helgar erum við alltaf vöknum um hálf tíu eða einhvað svoleiðis!!

En svo fáum við örvar mjöööög líklega íbúðina um helgina!!! get ekki beðið... ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 11:26:57 / erlagulla

helgin...

já mín var sko aldreilis ákveðin að hætta að blogga.. en hérna kemur smá blogg.

Helgin var helvíti fín.. byrjaði á vinnupartýi sem að heppnaðist svona helvíti vel.. allir á eyrunum og svona.. hehehe.. nema ég því að ég vildi spara mig fyrir laugardeginum því að þá fór ég á árshátíð hjá vinnunni hans örvar.

allavega þá var alveg rosalega gaman á árshátíðinni og já Jóa ég skellti mér sko í Rafting og dííí hvað það var gaman, hefði ekki viljað missa af því! en svo efit að hafa verið að míga á sig úr kulda og maður komin með hor í nös, þá var var farið með rútu á hótel selfoss þar sem árshátíðin átti að vera. Byrjað var á því að skella sér í sjóðandi heitt bað því að eins og ég sagði hér að ofan þá var maður að drepast úr kulda efitr rafting-ið! enda er það kannski ekki skrítið að mér hafi verið extra kallt því að auðvitað þurfti röggi örn að henda mér ofan í ána!!! hehee.. en það var bara gaman. Síðan var farið að punta sig og gera sig sæta fyrir árshátíðina.. Byrjað var að drekka á milljón og má segja að ég og soffía höfum kannski drukkið aðeins og geist því að áður en að örvar og friðbjörn vissu vorum við á eyrunum, eheheheheh... en þá höfuð við farið með kellunum þar á meðal, Jónu hans Rögga Arnar, Sibbu í Bít og Guðrúnu í Rifi upp á hótelherbergi að djúsa, tókum all nokkur tópas skot og kláruðum 3 asti gansia flöskur á nó time, hjehehehe

en þetta var snilldar helgi og núna bíður maður bara eftir árshátíðinni hjá Icelandic!


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 15:15:59 / erlagulla

ERLA OG HELGA - NÝJU SÖNGVARARNIR Í STJÓRNINNI!!

ÉG OG HELGA TÓKUM LAGIÐ MEÐ STJÓRNINNI... !!! SUNGUM TIL Í ALLT! ÞAÐ VAR GEGGJAÐ


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 08:45:05 / erlagulla

Ný vinnuvika hafin.

Þá er ný vinnuvika hafin.

En allavega þá vorum ég og helga fyrir austan um helgina og var það mjög notalegt og fínt, alltaf gaman að fara autur og hitta fjölskylduna. En það var líka mjög erfitt að fara í gær og þegar ég var í flugvélinni á leiðinni til reykjavíkur þá komu smá tár hjá mér :(  Það er alveg ömurlegt að búa ekki hjá mömmu og pabba! í alvörrunni þá er ég ALLTOF langt frá þeim! Stundum langar mér bara að fara austur og vera hjá þeim!

en allavega þá fær hlega ábyggilega íbúðina í dag og verð ég þá að vera dugleg að hjálpa henni að flytja inn! enda er það líka bara gaman, gaman að fara að raða inn í nýja íbúð og svona!

En ástæðan fyrir því að ég er að blogga núna í vinnunni er að navision kerfið sem að við vinnum með liggur niðri þannig að það er ekki hægt að gera neitt.

En svo á næstu helgi kemur hann örvar minn til mín og er ég ekki frá því að ég hlakka bara helvíti mikið til að hitta hann, hitti hann síðast fyrir tveim helgum.

En nóg í bili.. BLESS


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 22:39:06 / erlagulla

hæ hó hæ hó dí komme rígtí ró..dúdúdúdú, dúdúdúdú hæ hó hæ hó hæ hó, hæ, hó...

Góða kvöldið öll sömul.....

Núna var mín að koma heim eftir að hafa verið að borða á Humarhúsinu... (núna hugsa ábyggilega margir, hvaða djöfulsins snobb er þetta) en allavega þá er þetta ekki snobb í mér.. þetta var bara tengt vinnunni, því í dag þá kom maður að nafni Poul í heimsókn til okkar í vinnuna, en hann kemur frá fyrirtæki sem að heitir Linpac og á ég í miklum samskiptum við þennan mann því að það er jú ég sem sé um að panta inn fyrir fyrirtækið og verslum við mikið við Linpac. En svo var hann að biðja mig um að koma í heimsókn til hans eða til Linpac fyrstu eða aðra vikuna í nóvember, þannig að ég fer þá fyrstu bisness ferðina mína út... :) Auðvitað skiptir miklu máli þegar maður er að panta svona inn og senda email hingað og þangað að hafa hitt manneskjuna, því að t.d. þá get ég nefnt fullt af fyrirtækjum sem að við verslum við og fullt af manneskjum sem að vinna í fyrirtækinu sem að ég hef aldrei hitt, þannig að það skiptir miklu máli að fara í heimsóknir út og hitta manneskjuna og fá að sjá það sem að ég er að panta frá þeim.

en annars er sko allt gott að frétta, ég og helga ætlum að skella okkur austur á morgun að hitta familíuna og hafa það gott, ofboðlega hlakka ég til!!  :)

En núna er kominn háttartími!

að lokum við ég óska Urði Örnu frænku til hamingju með 20 ára afmælið!!! :) þúsund kossar frá mér..

Góða nótt krúsídúllurnar mínar :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 20:45:31 / erlagulla

æluhelgi..

Smá blogg frá helginni...

Að vísu lítið sem að ég get sagt því að helga er búin að segja allt frá helginni á blogginu sínu! en ég segi smá í punktabloggi!

  • Fórum á Ítalíu á föstudaginn og voru 10 mín að borða :)
  • Fórum síðan á mikka dí og fengum okkur ógeðslega vondan róló sjeik! ojjj
  • Síðan á laugardeginum hittum við dagnýju frænku og fórum með hana í kringluna að versla smá!
  • Að vísu var aðal atriðið að fara í kringluna í ríkið!!! en það átti eftir að hafa leiðinlegar afleiðingar seinna um kvöldið :) hehehehe..
  • en allavega þá ákváðum við að kaupa okkur helvítis eplasnafs (sem að bæ ðe vei ætla ég aldrei að drekka aftur)
  • svo var farið heim að tjilla áður en að við fórum í smá afmæli til dagnýjar thelmu.
  • Það var rosalega gaman, enda mikið DRUKKIÐ! HEHEHE...
  • svo var farið niðrí bæ og þar hittujm við Ragga, Gunna, Aron, Nonna, Heiðrúnu og marga fleiri...
  • Erla ákvað að fá sér "smá" eplasnafs en að endaði með því að ég ældi á endanum..
  • en það verður ekkert farið meira út í þá sálma.
  • En sunnudagurinn var tekinn með smá þynnku og svo var farið í sund!
  • en bara að láta ykkur vita að þetta var í FYRSTA SKIPTI sem að ég æli á fylleríi! Og líka í fyrsta skiptið sem að ég verð þunn, því að mér hefur alltaf tekist að sleppa við það að vera þunn.!

Þetta var helgin í hnotskurn!!

Bless í bili


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 17:17:43 / erlagulla

myndir og nýtt blogg

Jæja þá eru komnar myndir frá Tenerife og meira að segja nýtt blogg :)

Njótið vel :)

                           

fleiri myndir eru hérna. www.erlagulla.myphotoalbum.com


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 22:03:56 / erlagulla

Hellúúú...

ég er oooof léleg að blogga.. en það er góð ástæða fyrir því.....

en allavega þá fórum ég, örvar, ása og frikki til tenerife, og var þessi ferð alveg frábær í alla staði fyrir utan kakkalakkana sem að voru að gera okkur geðveika, með svefnleysi og þess háttar!! en þeir (kakkalakkarnir) voru kannski bara að reyna að fá okkur (mig, örvar, ásu og frikka) til þess að stunda hópsex, hehe.. því að síðustu 2 næturnar sváfum við öll saman útaf því að það var kakkalakka ættarmót í íbúðinni hjá ásu og frikka.. hehehe.. en þetta var fínt... núna erum við orðin ein stór fjölskylda :) "vorum meira að segja farin að skíra kakkalakkana" (ása, trrrrrr tissssss)

en ég og örvar skiptum 3svar sinnum um hótelherbergi og 1 sinni um hótel og hótelið sem að við vorum flutt á var bara paradís.. við héldum að við værum í brúðarsvítu! það voru náttsloppar fyrir okkur og inniskór og tvöfallt nuddbaðkar með ljósum og útvarpi og öllu helsta!! þetta var GEGGJAÐ hótel!!! en það má nú eiginlega þakka kakkalökkunum fyrir það að við vorum færð um hótel!!!

en svo er ég ákveðin að taka fjarnám því að mér var boðin svo góð staða hjá vgi.. en ég vil alls ekki hætta í skólanum, því að þetta er svo rosalega þroskandi nám!

En jæja elskurnar.. man ekki meira í bili þannig að ég segi bara góða nótt og sofiði rótt :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 19:10:40 / erlagulla

TTTTEEENNNEEERRRIIIFFFEEEEEEEE!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Góða kvöldið góðir hálsar...

Ég get sko sagt ykkur það að ég er að fá tilhlökkunar brjálæðis gleðikast!! dííí hvað mér hlakkar til að fara út.... get ekki beðið lengur! ohhhh hvað það verður viðbjóðslega ógeðslega gaman!!!!

það er sko nóg að hjá manni núna í vinnunni.... er svona að skoða málin hvað varðar haustið.. er ekki alveg búin að ákveða mig hvað ég ætla að gera.. en það er samt voðalega erfitt að segja nei við svona stöðu sem verið er að bjóða mér... er bara að skoða þetta samt. En svo á föstudaginn er golfmót og matur hjá VGI og verður þetta geggjað... golfmótið byrjar klukkan 13:00 og þar verður skot á einhverjum teigum og svo eftir golfmótið verður svaka góður matur og þar verður sko aldeilis drukkið og djammað frá á rauða nótt. En það er spurning hvort að maður fari niðrí bæ á Nasa á sálina eða þá að vera bara þarna í Vgi og djamma, en það verður víst hljómsveit og allur pakkinn...! Það var boðið um 300 manns í þessa veislu þannig að það er spurning hvað það koma margir. Þetta verður allavega svakalega gaman...

en jæja ætla að fara að setja ýsuna í pottinn... en pabbi var enda við að senda okkur heilan kassa af fisk, ummm...........


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12